S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
18.3.2010 | 21:51 | Kristinn | Mótahald
Lokaumferðin í Iceland Express-deildinni
Þá er deildarkeppninni í Iceland Express-deildinni lokið í ár og það voru KR-ingar sem urðu deildarmeistarar eftir æsispennandi lokaumferð í kvöld. Fyrir umferðina gátu Grindavík og KR orðið deildarmeistarar. KR þurfti að sigra eða treysta á að ÍR myndi vinna Grindavík. Raunin varð sú að KR hafði sigur á Snæfelli 86:90 og því skiptu úrslit úr leik ÍR og Grindavíkur lengur máli. ÍR sigraði samt sem áður Grindavík á heimavelli 91:89 í hörkuspennandi leik sem var jafn allan tíman og stórskemmtilegur. ÍR tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni með sigrinum. Tindastóll gerði góða ferð í bæinn og vann Fjölni í Grafarvoginum og gerði þar með út um vonir Fjölnis um að fara í úrslitakeppnina. Leiknum lauk 83:86 og Tindstóll fer í 8-liða úrslit. Stjarnan vann Breiðablik í Garðabænum, 109:86 og Njarðvík sigraði FSu á Selfossi 72:113. Það kemur í hlutskipti Blika og FSu að falla í ár í 1. deild. 8-liða úrslitin Hefjast að viku liðinni á fimmtudag/föstudag. KR – ÍR Keflavík – Tindastóll Grindavík – Snæfell Stjarnan - Njarðvík |