© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2010 | 13:40 | Kristinn | Mótahald
Næst síðasta umferð 1. deildar karla
Í kvöld fara fram fjórir leikir í 1. deild karla.

Hrunamenn fá Skallagrím í heimsókn á Flúðir. Hrunamenn eru fallnir í 2. deild en Skallagrímur eru öryggir með sæti í úrslitakeppninni. Þeir eru í baráttu um að vera sem efst eftir næstu umferð til þess að freista þess að ná heimaleikjaréttinum.

Þór Akureyri á heimaleik gegn Haukum í Síðuskóla. Haukar hafa tveggja stiga forskot á Val og Þór Þorlákshöfn og leik til góða á Val að auki. Sigur í kvöld myndi nánast tryggja Haukum annað sætið og heimaleikjaréttinn út úrslitakeppnina. Þórsarar eru í 8. sæti með 12 stig eins og Höttur.

Þór Þorlákshöfn fær svo KFÍ í heimsókn til Þorlákshafnar. KFÍ menn hafa tryggt sér sigur í deildinni og sæti í Iceland Express-deildinni að ári. Þórsarar eru í harðri keppni um að ná 2.-3. sæti og tryggja sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni.

ÍA fær Hött í heimsókn í íþróttahúsið á Jaðarsbökkum uppi á Skaga. Skagamenn verða að sigra í siðustu tveim leikjum sínum til þess að forðast fall í 2. deild. ÍA vann fyrri leik þessara liða með 2 stigum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hann rífur í!   Bryndís Guðmundsdóttir passar að bikarinn sem U16 ára kvenna á Norðurlandamótinu í Svíþjóð árið 2004 skili sér til Íslands. Liðsfélagi hennar Helena Sverrisdóttir skutlar henni enda rífur bikarinn aðeins í.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið