S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
24.2.2000 | 9:43 | -
Ísland tapaði 94-65 í Makedóníu
Ísland tapaði sínum fjórða leik í D-riðli undanúrslitakeppni Evrópumóts landsliða í Skopje í gærkvöld. Makedóníumenn gerðu 94 stig gegn 65 stigum Íslands. Í leikhléi var staðan 46-34. Teitur Örlygsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 18 stig. Önnur úrslit í D-riðli urðu þau að Úkraína tapaði heima fyrir Slóveníu 63-76 og Portúgalir töpuðu sömuleiðis á heimavelli sínum 77-84. Íslendingar mæta Portúgölum í Laugardalshöll á laugardaginn kl.16:00, en þessar þjóðir hafa tapað öllum leikjum í riðlinum til þessa. Það má því búast við hörkuleik og víst er að íslenska liðið ætlar að ná í sín fyrsta sigur í keppninni. Staðan í D-riðli er nú þessi.
|