S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
2.3.2010 | 12:30 | Kristinn | Mótahald
Leikir kvöldsins
Hvaða lið nær 2. sætinu í kvöld: Keflavík hefur 2 stiga forskot og nægir því sigur til að tryggja sér 2. sætið. Ef Keflavík tapar í kvöld og Grindavík vinnur þá eru þau og Hamar öll jöfn. Þegar kíkt er á innbyrðisviðureignir þeirra eru þau enn öll jöfn, öll hafa unnið 4 leiki sín á milli í vetur. Þá skipta lokatölur í leik Keflavíkur og Hamars miklu máli, ef Hamar vinnur með 4 eða minna þá endar Keflavík í öðru sæti, Hamar í þriðja og Grindavík í fjórða. Ef Hamar vinnur með 5 eða 6 stigum þá verður Hamar í öðru sæti, Keflavík í þriðja og Grindavík í fjórða en ef Hamar vinnur með 7 stigum eða meira þá verður Hamar í öðru, Grindavík þriðja og Keflavík í fjórða. |