S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.2.2010 | 9:50 | Kristinn | FIBA
Bestu unguleikmennirnir 2009
Ricky Rubio er að fá þessa útnefningu þriðja árið í röð en hann er 1.90 cm hár bakvörður sem tók þátt í sínu öðru stórmóti með landsliði Spánar þar sem þeir unnu sinn fyrsta evrópumeistaratitil í Póllandi í haust. Þar var hann með 5.9 stig, 2.2 fráköst og leiddi lið sitt með 3.9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Ricky, sem var valinn fimmti í nýliðavali NBA af Minnesota Timberwolves, kaus að fresta för sinni Vestur og leika áfram á Spáni um sinn. Þar færði hann sig frá liði DKV Joventut og samdi við Barcelona. Milan Macvan frá Serbíu var annar í valinu að þessu sinni og Jan Vesely frá Tékklandi þriðji en Ricky vann með yfirburðum í vali almennings og dómnefndar. Alba Torrens var í bronsliði Spánar í Evrópukeppni kvenna 2009 en hún leikur stöðu bakvarðar og er 1.92 cm. á hæð. Hún leiddi U20 ára lið Spánar í stigum og fráköstum þegar liðið hlaut silfur í Evrópukeppninni. Alba leikur með liði sínu Halcon Avenida sem tekur þátt í Euroleague kvenna. Í öðru sæti var Louice Halvarrson frá Svíþjóð og Jelena Milovanovic frá Serbíu var þriðja. |