
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 4.2.2010 | 9:25 | Kristinn 
  Síðasti dagur félagaskipta á morgun 5. febrúar 
   
    Varðandi erlenda leikmenn með bandaríkst vegabréf gilda aðrar reglur en þeim er heimilt að skipta eftir 6. febrúar til loka tímabilsins. Félagaskipti í yngri flokkunum voru áður heimild til loka febrúar ár hvert en því var breytt á síðasta körfuknattleiksþingi síðastliðið vor. Á morgun er einnig síðasti dagur til að skrá venslasamninga hjá KKÍ á yfirstandandi keppnistímabili en um þá gilda almennar reglur um félagaskipti. Skrifstofa KKÍ er opin til kl. 17:00 alla virka daga, en einnig er hægt að senda beiðnir um félagaskipti á faxi til KKÍ, faxnúmerið er 514-4101 eða í tölvupósti á kki@kki.is. Hér á síðunni er hægt að nálgast félagaskiptaeyðublaðið í aðalvalmynd til vinstri. Á eyðublaðinu eru allar upplýsingar um hvernig greiða má fyrir félagaskiptin. Umsóknir um félagaskipti eru ekki samþykktar nema að tilgreint sé með greiðslumáta á umsókninni og sé þá annað hvort staðfest af forráðamönnum nýja liðsins eða að kvittun fylgi í tölvupósti á kki@kki.is sé millifært í heimabanka.  |