S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
2.2.2010 | 7:02 | Kristinn | Mótahald
Skráning á úrslitum leikja
Öll lið eiga aðgang sem sendur hefur verið á hvert félag og með honum er hægt skrá sig inn á umsjónarsíðu kki.baskethotel.com og setja inn úrslit. Ef einhvert lið eða þeir sem sjá um þessi mál í viðkomandi félögum vantar aðgang er hægt að hafa samband við skrifstofu KKÍ og fá það uppgefið. Í 8. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót segir m.a.: Í efstu deild karla og kvenna, 1. deild karla, 16-liða, 8-liða og undanúrslitum bikarkeppni KKÍ og í fyrirtækjabikar KKÍ skal heimalið setja allar tölfræðiupplýsingar með þeim hætti sem KKÍ tilgreinir. Skulu upplýsingar þessar hafa borist KKÍ eigi síðar en 2 klst. eftir að leik lýkur. Í öllum öðrum leikjum en tilteknir eru hér, skulu félög skrá inn úrslit leikja á netið með þeim hætti sem KKÍ tilgreinir. Skulu úrslitin hafa borist KKÍ eigi síðar en 1 klst. eftir að leik lýkur. Í fjölliðamótum skulu úrslit allra leikja skráð á netið innan tveggja sólarhringa frá mótslokum af framkvæmdaraðila móts. |