© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.1.2010 | 10:45 | Kristinn
Íþróttamaður ársins útnefndur í kvöld: Jón Arnór og Helena meðal 10 efstu
Samtök íþróttafréttamanna tilkynntu nýverið um val þeirra á þeim íþróttamönnum sem skipa 10 efstu sætin í vali á Íþróttamanni ársins 2009 og í kvöld er komið að því að það verði kunngjört hver hlýtur titilinn. Sex karlar og fjórar konur eru í þessum sætum en tilkynnt verður um kjörið á Grand Hótel Reykjavík í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.

Körfuknattleiksleikmenn ársins hjá KKÍ eru bæði á topp 10 listanaum en það eru þau Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir.

Jón Arnór Stefánsson · CB Granada á Spáni
Jón Arnór lék með KR á síðasta tímabili. Hann var kosinn besti leikmaður deildarinnar á lokahófi KKÍ fyrir frammistöðu sína með KR sem Íslandsmeistari og Powerademeistari ásamt því að liðið lék til úrslita í Subwaybikarnum. Eftir tímabilið lék Jón með ítalska liðinu Benetton Treviso í úrslitakeppninni og stóð sig mjög vel. Í haust samdi Jón svo við spænska liðið CB Granada og er að ná fyrra formi eftir að hafa meiðst illa í upphafi tímabilsins.

Helena Sverrisdóttir · TCU-háskólanum í Bandaríkjunum
Helena hefur staðið sig frábærlega í bandaríska háskólaboltanum en á síðasta tímabili komst TCU í úrslitakeppnina sem er frábær árangur þar í landi og átti Helena drjúgan þátt í því afreki. Í Evrópukeppni landsliða lék íslenska liðið í B-deildinni og þar fór Helena á kostum með íslenska landsliðinu og var á meðal efstu kvenna í nær öllum tölfræðiflokkum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn á leið á lokahóf KKÍ 1988 í gamla Broadway í Mjódd.  Karl Guðlaugsson og Þorvaldur Geirsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið