S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
12.12.2009 | 16:29 | Stefán
Lið frægra stóð í landsliðsmönnunum
Leikmenn beggja liða ásamt þjálfurum að leik loknum
Leikmenn beggja liða ásamt þjálfurum að leik loknum Fjölmargir áhorfendur voru komnir í Grafarvoginn þegar leikur frægra gegn eldri landsliðsmönnum hófst. Það var mikil spenna í loftinu og áhorfendur tóku vel undir þegar landsliðsmennirnir sem og hinir frægu voru kynntir til leiks enda sjaldan hægt að sjá jafn áhugaverðan körfuboltaleik. Gömlu landsliðsmennirnir sýndu frábæra takta í upphafi leiks og keyrðu upp muninn. Í leik þar sem hvor hálfleikur er aðeins átta mínútur þá er 19 stiga munur töluvert mikið. Það var einmitt munurinn í hálfleik en eldri landsliðsmennirnir leiddu 23-4. Hálfleiksræða Svala Björgvinssonar virðist hafa skilað sínu en lið frægra hóf seinni hálfleikinn frábærlega og fór að saxa á muninn. Það hafði þó eitthvað að segja að það fjölgaði ávallt í liði frægra og undir restina voru allir leikmennirnir komnir inná gegn aðeins fimm eldri landsliðsmönnum. Lokatölur voru 39-27 eldri landsliðmönnunum í vil. Lið frægra: 3 Jörundur Ragnarsson 8 Auðunn Blöndal 10 Bergur Þór Ingólfsson 20 Sverrir Bergmann 22 Logi Bergmann Eiðsson 23 Sigurður Hrannar Hjaltason 32 Egill Einarsson 33 Ólafur Þór Jóelsson 44 Hilmir Snær Guðnason Lið eldri landsliðsmanna: 4 Falur Harðarson 6 Guðmundur Bragason 7 Tómas Holton 8 Henning Henningsson 9 Birgir Mikaelsson 10 Páll Kolbeinsson 11 Teitur Örlygsson 12 Guðjón Skúlason 13 Herberg Arnarson 14 Jón Kr. Gíslason 15 Sigurður Ingimundarson |