© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.12.2009 | 14:08 | Stefán
Kristi Smith vann 3-stiga keppni kvenna
Kristi Smith, leikmaður Keflavíkur, vann þriggja-stigakeppni kvenna á Stjörnudeginum í Grafarvogi í dag.

Kristi var í úrslitum ásamt þeim Heather Ezell, Jenny Pfifer-Finora og Koren Schram.

Kristi fékk 13 stig í úrslitunum en Heather Ezell var stigahæsti keppandinn í forkeppninni með 16 stig.

Úrslitin reyndust afar spennandi en Koren Schram hóf leik og setti 12 stig og setti mikla pressu á næsta keppanda sem var KR-ingurinn Jennifer Pfifer-Finora. Hún stóð sig afar vel og náði 10 stigum. Kristi Smith var þriðja og setti 13 stig. Var hún því stigahæst þegar Heather Ezell hóf leik. Ezell byrjaði á að geiga á fyrstu þremur skotun sínum og endaði með 10 stig.

Það er því Kristi Smith sem var sigurvegari keppninnar í ár.

Forkeppnin stig:
1. Heather Ezell Haukar 16 stig
2. Jennifer Pfifer-Finora KR 11 stig
3. Kristi Smith Keflavík 11 stig
4. Koren Schram Hamar 9 stig
5. Kristen Green Snæfell 7 stig
6. Birna Valgarðsdóttir Snæfell 7 stig
7. Hildur Sigurðardóttir KR 6 stig
8. Ólöf Helga Pálsdóttir Njarðvík 5 stig

Úrslit stig:
1. Kristi Smith Keflavík 13 stig
2. Koren Schram Hamar 11 stig
3. Jennifer Pfifer-Finora 10 stig
4. Heather Ezell 10 stig
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið