© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.12.2009 | 7:05 | Kristinn
+/- á tölfræðisíðunni
Óskar Ófeigur, blaðamaður á Fréttablaðinu, tók saman um daginn smá samantekt um +/- tölfræðina á tölfræðivef KKÍ úr Iceland Express-deild karla í vetur.

Margir hafa ekki áttað sig á því hvernig þessi tala er fengin en útskýringin er einföld: Talan er fengin með því að mínusa stig skoruð og stig fengin á sig þegar leikmaður er inn á vellinum. Þetta er því í raun nettó-stigaskor liðsins þegar leikmaður er inn á vellinum.

Dæmi: Leikmaður kemur inn á í stöðunni 10-10 og á meðan hann er inná skorar hans lið 15 stig gegn 2 hjá andstæðingnum. Alveg óháð hans framlagi er hann með 13 í +/-. Hægt er að sjá meðal annars bestu liðssamsetningu eftir þessari aðferð undir „Ítarlegri tölfræði" í úrslitum hvers leiks á kki.is/motayfirlit

Úr greininni ….
Það er flestum ljóst að tölfræði í körfubolta segir ekki alla söguna og margir mikilvægir þættir innan leiksins skila sér aldrei inn á tölfræðiskýrsluna eftir leik. Hlutir eins og góðar ákvarðanir, góð vörn, góðar hindranir eða óeigingirni inn á vellinum stuðla oftast að betri leik liðsins en koma hvergi fram í tölfræðilínu leikmanna. Í nýju tölfræðikerfi KKÍ er þó komin fram ein leið til þess að mæla áhrif leikmanna á leik liða þeirra. Nú er nefnilega hægt að sjá hvernig liðunum gengur þegar ákveðinn leikmaður er inn á en þar má sjá hvort liðið sé í plús eða mínus þegar viðkomandi leikmaður er meðal þeirra fimm sem eru á vellinum hverju sinni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið