© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.11.2009 | 13:00 | Stefán | Þjálfaramál
Stjörnuliðin valin í beinni
Laugardaginn 12. desember fara fram árlegir Stjörnuleikir KKÍ, í ár fara þeir fram í Dalhúsum Grafarvogi.

Á morgun fimmtudag munu liðin verða valin en til þess að stjórna liðunum hafa verið fengnir þjálfarar efstu tveggja liðanna í Iceland Expressdeildunum miðað við stöðuna eins og hún er núna.

Þjálfarar kvennaliðanna eru Benedikt Guðmundson þjálfari KR sem stjórnar Iceland Express-liðinu og Ágúst Björgvinsson úr Hamri stjórnar Shell-liðinu. Iceland Express-liði karla stjórnar Njarðvíkingurinn Sigurður Ingumundarson og Guðjón Skúlason þjálfari Keflvíkinga stjórnar Shell-liðinu.

Þjálfaranir munu velja leikmenn liðanna í beinni útsendingu á Sporttv.is á morgun fimmtudag. Valið á kvennaliðunum hefst kl. 14:00 og karlaliðunum kl. 14:30.

Valið fer þannig fram að þjálfararnir velja til skiptis einn leikmann í einu og svo þannig koll af kolli þangað til að liðin verða fullskipuð. Hver þjálfari fær sex mínútur í heildina fyrir valið á sínu liði, skákklukka verður á staðnum sem þjálfararnir munu notast við. Þannig að mögulega eiga þeir nægan tíma þegar kemur að því að velja síðustu leikmennina eða verða í tímahraki sem verður að teljast líklegra.

Það verður því skemmtilegur körfuboltadagur í Grafarvoginum laugardaginn 12.desember með tveimur Stjörnuleikjum sem og öðrum skemmtilegum körfuboltauppákomum en KKÍ hefur ákveðið að hafa frítt á leikina.

Við hvetjum lesendur kkí.is að fylgjast með á morgun á sporttv.is þegar þjálfararnir velja leikmennina í Stjörnuliðin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Miðherjarnir Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, eigast við í teignum í deildarleik 26. janúar 2006.  Brenton Birmingham, UMFN, reynir að ná fylgja sínum manni og dómarinn Björgvin Rúnarsson fylgist grannt með.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið