S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.10.2009 | 0:10 | FÍR
Körfuboltadagur í Smáralindinni í dag
Dagskráin stendur yfir frá 13:00 - 17:00. M.a. sem verður boðið upp á: 13:00 - Skotleikir og þrautir 14:00 - Íslandsmót í Fingraspuna. Þar gefst áhugasömum tækifæri á því að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar með því að verða fyrsti Íslandsmeistarinn í þessari listgrein. Það er öllum frjálst að taka þátt og það er leyfilegt að koma með sinn eigin bolta. 15:00 - Leikmenn frá karla og kvennaliði KR, kvennaliði Hauka og karlaliði Stjörnunnar sem leika í Meistarakeppninni á sunnudaginn mæta á svæðið og gefst gestum kostur á að skora á þá í skotkeppni. Fulltrúar frá Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna verða á staðnum og kynna sína starfsemi en KKÍ lætur allan ágóða af leikjum Meistara Meistarann renna til Neistans. 16:00 - Framhald á skotleikjum, kynningu á körfubolta og ýmsu fleira. 17:00 - Áætlað að dagskrá ljúki. Það verða ýmis verðlaun gefin fyrir skotleikina og þrautirnar og má nefna gjafabréf frá Iceland Express, Subway og Friday's. Bikar verður fyrir Íslandsmeistarann í Fingraspuna. Þórður Helgi Þórðarson, a.k.a. Doddi litli eða Loveguru verður á staðnum og heldur uppi dynjandi takti með sinni alkunnu snilld. Nú er um að gera fyrir fjölskyldur að skella sér í Smáralindina í dag og gera sér glaðan dag. Sjáumst í Vetrargarðinum. |