S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
8.10.2009 | 22:20 | FÍR
Íslandsmót í " Fingraspuna " í Smáralind á laugardaginn
Leikmenn Harlem Globetrotters eru góðir í fingraspuna.
Dagskrá verður frá 13:00-17:00. M.a. sem verður keppt í, er Íslandsmót í Fingraspuna en sú keppni hefst klukkan 14:00 Fingraspuni er íslenskt orð yfir " fingerspinning " en það gengur út á að halda knetti á fingri/um með því að snúa honum og halda honum þannig eins lengi og hægt er. Sá sem nær að halda knettinum lengst verður krýndur sem Íslandsmeistari í Fingraspuna. Sigurvegarinn hlýtur bikar og inneign frá Iceland Express í verðlaun. Það er öllum frjálst að taka þátt í þessum leik og þeir sem vilja mæta með sína eigin bolta er frjálst að gera það. Hægt er að nálgast sýnikennslu í Fingraspuna hér Meistarakeppni KKÍ 2009 þar sem íslandsmeistarar og Bikarmeistarar frá fyrra ári mætast fer fram í DHL Höllinni sunnudaginn 11. október og er um að ræða styrktarleik eins og undanfarin 15 ár. Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna fær allan aðgangseyri og það sem safnast í kringum leikina að þessu sinni. Leikmenn liðanna sem taka þátt í Meistarakeppninni á sunnudeginum verða í Smáralindinni ásamt fulltrúum frá Neistanum til að kynna leikina sem og starfsemi Neistans. Gestir fá tækifæri á að skora á leikmenn í skotkeppni. |