S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
21.9.2009 | 16:00 | Kristinn | Mótahald
Eymundsmótið 2009
Mótið verður haldið 3.-4. október í ár, en það hefur tekist einstaklega vel í síðustu þrjú skipti og vaxið janft og þétt. Skráning stendur yfir til mánudagsins 28. september á netfanginu benedikt@kr.is eða í síma 510-5312. Mótsgjaldið er 2.000 kr. á hvern leikmann. Ekki þarf að skrá hvern og einn iðkanda heldur þarf að skrá lið og tiltaka fjölda í liðinu. Fyrirkomulagið er þannig að leikið er í 2x12 mínútur og er leiktíminn ekkert stöðvaður. Leikið er í báðum sölum DHL-hallarinnar og er dómari á hverjum velli. Hvert lið fær að lágmarki fjóra leiki í mótinu og er spilað á einum degi í hverjum aldursflokki. Eftir mótið verður síðan verðlaunaafhending og fá allir þátttakendur verðlaunapening. |