© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.9.2009 | 22:23 | Kristinn | FIBA
EM 2009: 8-liða úrslitin klár
Juan Carlos Navarro var sjóðandi í dag og hitti 7/9 fyrir utan þriggjastigalínuna. Allt lið Póllands var með 8 þrista í leiknum en Spánn var með 13 þrista.

Þá er það ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum evrópukeppninnar.

Í síðasta leik dagsins var það Slóvenía sem vann Tyrkland með tveggja stiga mun. Tyrkland fékk nánast opið sniðskot í lok leiksins en gáfu út fyrir þriggjastiga línuna og reyndu að vinna leikinn sem mistókst.

Tyrkir fá því það verðuga verkefni að leika gegn Grikkjum í 8-liða úrslitunum.

Í fyrsta leik dagsins unnu Serbar lið Litháens eftir jafnan leik og Spánn vann lið gestgjafanna auðveldlega.

16. september
Frakkland - Spánn
Rússland - Serbía

17. september
Tyrkland - Grikkland
Slóvenía - Króatía

Sigurliðin úr efri viðureignunum leika svo gegn hvort öðru þannig að það verður ekki síðri næsta umferð, sigurvegarar úr leikjum Frakkland/Spánn - Tyrkland/Grikkland í undanúrslitunum.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið