S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.9.2009 | 10:30 | Kristinn | FIBA
Evrópukeppnin: Lokaleikir í öðrum milliriðlinum í dag
Leikur Króata og Þýskalands hefst í kvöld kl. 19.00 að íslenskum tíma og verður bein tölfræðilýsing að venju á vef www.eurobasket2009.org. Fyrr í dag eigast við Rússar og Makedónía. Makedónía hafa að heilmiklu að keppa því þeir geta með sigri á Rússum komist áfram. Rússar eru í skemmtilegri stöðu, geta náð öðru sæti milliriðilsins með sigri eða með tapi átt á hættu að fara heim vinni Þýskaland sinn leik. Rússar unnu Grikki í síðasta leik og Makedónía lagði Þýskaland þannig að bæði lið ætla sér sigur einnig í dag. Frakkar og Grikkir eigast við kl 16.15 í dag. Frakkar geta farið ósigraðir inn í úrslitin með fyrsta sigri sínum á Grikkjum í 26 ár í lokakeppni EM. Frakkar hafa spila vel í keppninni hingað til og eru til alls líklegir en Grikkir eru með frábært lið og fá líklega inn miðherjann sinn Kostas Koufos sem var veikur í leiknum gegn Rússum sem tapaðist. |