S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
14.9.2009 | 9:45 | Kristinn | FIBA
EM í Póllandi: Leikir dagsins
Tykland eru ósigraðir á EM í Póllandi
Spánn mætir Litháen í dag, en bæði lið hafa sjálfsagt óskað sér betra gengi til þessa á mótinu. Litháen er í neðsta sæti riðilsins og Spánn er fyrir neðan Tyrkland, Slóveníu og Serbíu og jafnir Póllandi þannig að sigur er lífsnauðsynlegur Spáni ætli þeir sér áfram í keppninni. Spánn og Pólland mætast svo í lokaleikjum sínum í milliriðlinum 16. september. Slóvenía mætir Póllandi kl 16.15 að íslenskum tíma. Slóvenía hefur komið á óvart á mótinu og náð fram góðum úrslitum og eru til allslíklegir í úrslitunum. Serbía fær síðan það verkefni að vera fyrsta liðið til að vinna Tyrkland á mótinu í lokaleik dagsins kl. 19.00 að íslenskum tíma en búst má við hörkuleik milli þessara liða í kvöld. Hægt er að sjá myndband með samantekt frá leikjum gærdagsins í gær á vef www.fibatv.com sem og samantekt úr leikjunum hingað til. Hægt er að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu á www.eurobasket2009.org ásamt því að lesa fréttir, skoða dagskrá leikja og sjá stöðu liða á mótinu. |