S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.8.2009 | 16:02 | Stefán
Svartfellingar fóru með sigur af hólmi
Helena skoraði mest allra á vellinum í dag eða 23 stig - SÞB
Íslensku stelpurnar létu stelpurnar frá Svartfjallalandi hafa fyrir hlutunum í dag en munurinn var í 10 stigum stóran hluta af leiknum. Í hálfleik leiddi Svartfjallaland 23-38 í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks fór Ísland að minnka muninn en fyrir lok þriðja leikluta munaði 13 stigum 41-54. Í lokaleikhlutanum gáfust þær íslensku aldrei upp og gestrisnin var ekki mikil í Smáranum. Í stað þess að leyfa gestunum að rúlla yfir sig létu þær finna hressilega fyrir sér. Lokatölur 62-77 en með smá heppni hefði munurinn verði minni í lokin. Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir með 23 stig en hún skoraði 18 þeirra í seinni hálfleik. Birna Valgarðsdóttir var með 18 stig og 8 fráköst. aðrar skoruðu minna. Hjá Svartfjallalandi var Jelena Dubljevic með 20 stig. Nú fer senn að hefjast leikur Íslands og Austurríkis í Smáranum í B-deild karlakeppninnar. Hefst leikurinn kl. 16.30. |