© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.8.2009 | 10:39 | Stefán
Tveir landsleikir í kvöld - konurnar á Ásvöllum
Stelpurnar þurfa á þínum stuðningi að halda í kvöld - SÞB
Ísland-Holland Ásvellir kl. 19:15

Íslenska kvennalandsliðið mætir því hollenska í kvöld á Ásvöllum kl. 19:15 í B-deild Evrópukeppninnar.

Ísland mætti Sviss á útivelli síðastliðinn laugardag og töpuðu naumt 70-68 í hörkuleik.

Í kvöld er það Holland sem er mótherji Íslands en leikur þessara liða fyrir ári síðan endaði með sigri Hollands 81-70.

Ísland leiddi þá stóran hluta af leiknum og var yfir 53-61 þegar fjórði leikhluti hófst. En þær hollensku náðu yfirhöndinni í leikhlutanum og unnu sigur.

Danmörk-Ísland Álaborg kl. 19:15(17:15 að islenskum tíma)

Karlalandslið Íslands spilar sinn fyrsta leik í seinni hluta B-deildar Evrópukeppninnar þegar þeir mæta Dönum í dag í Álaborg.

Danir spiluðu um síðustu helgi og töpuðu stórt fyrir Austurríkismönnum á útivelli 92-61.

Ísland vann leik liðanna fyrir ári síðan þegar liðin mættust í Laugardalshöll 77-71. Í leiknum leiddi liðið allan tímann og sigurinn því sanngjarn.

Bein tölfræðilýsing.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn A-landsliðs karla hlýða á þjóðsöng Íslands fyrir leik liðsins gegn Finnlandi 6. september 2006.  Frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Friðrik Stefánsson, Jakob Sigurðarson, Jón Nordal Hafsteinsson, Egill Jónasson, Jón Arnór Stefánsson, Páll Axel Vilbergsson, Brenton Birmingham, Fannar Ólafsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið