S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
1.8.2009 | 14:40 | fararstjori | Yngri landslið
Öruggur sigur á Georgíu og ísland leikur um 13. Sætið
Arnþór Freyr Guðmundsson hefur verið traustur í leikjum liðsins. Mynd SÖA
Mikill kraftur var í íslenska liðinu í upphafi og pressuvörnin virkaði mjög vel, forystan var 17-6 eftir fimm mínútur og 26-11 eftir fyrsta leikhluta. Allir 12 leikmenn íslenska liðsins komu inná en þeir náðu ekki að halda aftur af Georgíumönnum sem þökkuðu fyrir sig og sigruðu annan leikhlutann 15-22, staðan í hálfleik 41-33. Liðið hóf síðari hálfleikinn af krafti og snéru frákastabaráttunni sér í hag og þar með var björninn sigraður, Ragnar Ágúst Nathanelsson kom mjög sterkur til leiks í dag sem og lungað úr liðinu. Leikstjórnandinn Ægir Þór lék mjög vel og einn af stoðsendingar hæðstu leikmönnum mótsins. Þriðji leikhluti var eign íslenska liðsins og staðan að honum loknum 70-50. Í fjórða leikhluta bættu strákarnir við muninn og hitti Daði Berg Grétarsson vel í þriggja, staðan um miðjan leikhlutan 81-58. Flottur lokakafli hjá strákunum kom muninum í 29 stig og lokatölur 94-65. Sigurinn þýðir að liðið leikur um 13. Sætið gegn sigurvegurunum úr leik Dana og Skota en hann er í gangi þegar þetta er skrifað og er staðan 19-37 dönum í vil þannnig að útlitið er fyrir enn einn norðurlandaslaginn á mótinu. Tölfræði leiksins Leikurinn gegn Dönum er klukkan 10:30 að íslenskum tíma í Mojmiljo salnum. |