S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.7.2009 | 8:35 | fararstjori | Yngri landslið
18 ára liðið komið til Sarajevo
Strákarnir á æfingu í Borgarnesi
Strákarnir sem urðu Norðurlandameistarar í maí eru búnir að æfa vel í sumar og lagt töluvert á sig á leiðinni á evrópumótið. Fyrsti leikurinn er gegn Pólverjum en þeir sigruðu B-keppnina árið 2007 þegar að ´91 árgangur þeirra lék í evrópukeppni sem fram fór í Skopje í Makedóníu, en Pólverjar höfðu ekki unnið sig áður sem A-þjóð í aldurshópnum fyrir ofan. Verkefnið er spennandi og krefjandi en akkurat það sem beðið hefur verið eftir. Strákarnir eru í riðli með Pólverjum, Svíum sem urðu í þriðja sæti fyrir tveimur árum, Finnum sem urðu í 11. sæti og Slóvökum sem urðu í 13. sæti, en allt eru þetta hátt metnar þjóðir sem eiga erindi á að komast uppúr riðlinum. Strákarnir eru á leið á sína fyrstu æfingu. |