© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.5.2009 | 19:14 | Stefán
Hetjuleg barátta í lokaleiknum
Lokaleikur stelpnanna í U-18 var núna í kvöld gegn Dönum. Eftir tap liðsins gegn Noregi í morgun var ljóst að þær næðu ekki í leikinn um þriðja sætið. Í leik sem var fyrirfram búist við að yrði auðveldur leikur fyrir Dani kom annað í ljós. Íslensku stelpurnar léku eins og þær áttu að gera allt mótið og voru yfir stóran hluta af leiknum.

Byrjunarlið Íslands: Heiðrún Kristmundsdóttir, Dagmar Traustadóttir, Sara Mjöll Magnúsdóttir, Heiðrún Jónsdóttir og Bergdís Ragnarsdóttir.

Ísland byrjaði frábærlega en þær komust í 4-7 með stigum frá Dagmar Traustadóttur og Bergdísi Ragnarsdóttur. Svíarnir náðu að komast yfir á ný en liðin skiptust á körfum næstu mínútur 8-7, 9-10, 11-10, 11-12 og áfram. Ísland var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhlutann 17-18.

Annar leikhluti var eins og sá fyrsti. Liðin skiptust á körfum en á þessum tímapunkti var Ísland að stíga ágætlega út og passa boltann. Um miðjan leikhlutann virtist eins og það hafi komið lok á körfuna hjá Dönum því ofaní vildi boltinn ekki. Eftir ítrekaðar sóknartilraunir fór ekkert ofaní og Danirnir gengu á lagið og juku muninn. En þær skoruðu níu síðustu stig fyrri hálfleiks og leiddu 33-24 í hléinu.

Í þriðja leikhluta var jafnræði með liðunum og Ísland minnkaði muninn en þær dönsku voru seigar og fóru að salla niður fleiri og fleiri stigum. Á þessum tímapunkti var Ísland að tapa allt of mörgum boltum. Danirnir náðu að keyra muninn upp í 18 stig áður en leikhlutinn var allur en þær leiddu 53-35. Ísland missti Dagmar Traustadóttur út af meidda í leikhlutanum en hún meiddi sig í fæti.

Íslensku stelpurnar hættu aldrei að reyna minnka muninn og gáfu allt sem þær áttu í leikinn. Þær börðust fram á síðustu sekúndu en þær dönsku juku muninn ekkert að ráði í fjórða leikhluta. Þær hófu að spila pressuvörn en íslensku stelpurnar leystu hana mun betur heldur en þær gerðu fyrr í mótinu. Lokatölur reyndust vera 67-47.

Það var allt annað íslenskt lið sem mætti til leiks í þessum leik en þær spiluðu mjög vel stóran hluta af leiknum. Með smá heppni og þessari frammistöðu hefðu úrslit í hinum leikjunum jafnvel orðið hagstæðari.

Þar með er ljóst að Norðurlandamótið hjá U-18 kvenna er búið en þær taka ekki þátt í leikjunum um þriðja eða fyrsta sætið á sunnudag.

Stig:
Björg Einarsdóttir 10 stig
Þorbjörg Friðriksdóttir 9
Heiðrún Jónsdóttir 6 stig
Dagmar Traustadóttir 6 stig
Sara Mjöll Magnúsdóttir 4 stig
Bergdís Ragnarsdóttir 4 stig
Heiðrún Kristmundsdóttir 4 stig
Rannveig Ólafsdóttir 2 stig
Lóa Dís Másdóttir 2 stig
Jenný Harðardóttir, Heiða Valdimarsdóttir og Salbjörg Sævarsdóttir komu inná en náðu ekki að skora.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
EKKI NÚNA! Gæti Hörður Axel Vilhjálmsson vera að segja við liðsfélaga sinn hjá Keflavík Jón Norðdal á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 2009. Ísland vann San Marinó frekar auðveldlega í leiknum 93-39.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið