© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.5.2009 | 16:52 | Stefán | Yngri landslið
Engin gestrisni hjá heimamönnum
Arnar Björnsson skoraði 2 stig fyrir Ísland í dag mynd: SÞB
Strákarnir í U-16 mættu Svíum í þriðja leik sínum á NM. Íslensku strákarnir náðu ekki alveg að stilla saman strengi og þeir gulu unnu 79-59. Þrátt fyrir tap eiga strákarnir möguleika á að komast í úrslitaleikinn en svo að það gangi upp þurfa þeir að leggja Dani að velli í lokaleiknum á morgun með 15 stiga mun. Oddur Birnir Pétursson lék ekki með Íslandi í dag en hann er að kljást við smávægileg meiðsli. Einar Árni ákvað að hvíla hann í von um að hann verði orðinn leikfær á morgun gegn Dönum.

Byrjunarlið Íslands: Þorsteinn Ragnarsson, Emil Karel Einarsson, Snorri Hrafnkelsson, Kristófer Acox og Valur Orri Valsson.

Sænsku strákarnir eru mjög hávaxnir og eiga þeir nokkra turna innan sinna raða en drengirnir eru jafnframt íþróttamenn og því erfitt að eiga við. Þrátt fyrir það sýndu íslensku strákarnir að það er mikið í þá spunnið og í upphafi var jafnræði með liðunum. Fyrstu stigin voru sænsk en þá komu fjögur í röð frá Íslandi er þeir Þorsteinn Ragnarsson og Snorri Hrafnkelsson skoruðu. Svíar settu næstu stigin og um miðjan leikhlutann var jafnt 6-6. Svíþjóð náði sjö stiga forystu 15-8 um tíma en Ísland minnkaði muninn með þriggja-stiga körfu frá Einar Karel Einarssyni og tveggja stiga frá Þorsteini og munurinn því aðeins tvö stig eftir fyrsta leikhluta.

Annar leikhluti var í járnum í upphafi og liðin skiptust á körfum. Ísland leiddi um tíma 25-26 og fengu ágæt tækifæri að komast meira yfir en þá kom sex stig í röð frá Svíþjóð og þeir komnir í 31-26. ísland náði þó að læða inn körfu en síðustu sex stigin komu frá Svíþjóð er þeir negldu niður tveim þristum og staðan í hálfleik 37-28 gulum í vil.

Svíarnir gerðu út um leikinn nokkurn fljótlega í fyrri hálfleik og voru þeir komnir með 15 stiga forystu þegar um fjórar mínútur voru liðnar að þriðja leikhluta. Þrátt fyrir það hættu strákarnir ekkert að reyna en smá óheppni ásamt nokkuð óhagstæðri dómgæslu ollu því að Svíar voru komnir með 20 stiga forystu um tíma. Strákarnir náðu að minnka muninn aðeins og Svíþjóð leiddi 61-45 fyrir lokaleikhlutann.

Fjórði og síðasti leikhlutinn var eiginlega bara formsatriði en Svíarnir sem voru vel studdir á heimavelli sýndu lipra takta og keyrðu muninn enn meir upp og munaði mest 25 stigum 76-51. Strákarnir minnkuðu muninn aðeins fyrir leikslok og Svíar unnu sanngjarnan sigur 79-59.

Þrátt fyrir tap eiga strákarnir möguleika að komast í úrslitaleikinn en þá þurfa þeir að leggja Dani að velli á morgun með minnst 15 stiga mun.

Stig:
Þorsteinn Ragnarsson 17 stig
Kristófer Acox 10 stig
Valur Orri Valsson 10 stig
Maciej Baginski 8 stig
Matthías Sigurðarson 4 stig
Emil Karel Einarsson 3 stig
Snorri Hrafnkelsson 3 stig
Andri Daníelsson 2 stig
Arnar Björnsson 2 stig
Ágúst Orrason og Andri Skúlason léku en náðu ekki að skora.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið Íslands sem tók þátt í Norðurlandamótin sem fram fór á Íslandi 1968. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Þorsteinsson þjálfari, Birgir Jakobsson, Birgir Örn Birgis, Kristinn Stefánsson, Einar Bollason, Sigurður Ingólfsson og Agnar Friðriksson. Fremri röð frá vinstri: Guttormur Ólafsson, Kolbeinn Pálsson, Þórir Magnússon, Þorsteinn Hallgrímsson, Gunna Gunnarsson og Jón Sigurðsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið