© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.10.2001 | 12:19 | phs
Úrvalsdeildin hefst í kvöld
Úrvalsdeildin hefst í kvöld með fimm leikjum. Haukar mæta Grindvíkingum, KR mætir ÍR, Þórsarar fá Stjörnuna í heimsókn, Skallagrímsmenn taka á móti Njarðvíkingum og Keflvíkingar heimsækja Hamarsmenn í Hveragerði. Á morgun taka nýliðar Breiðabliks á móti Tindastóli í Smáranum.

Búast má við spennandi leikjum og ljóst er að hart verður barist á öllum vígstöðvum. Mikill áhugi virðist vera á leikjunum og víst er að margir eru orðnir óþreyjufullir eftir að Íslandsmótið hefjist, en það hefst nú tveim vikum síðar en undanfarin ár.

Íslandsmótið verður formlega sett á Ásvöllum fyrir leik Hauka og Grindvíkinga og mun Ólafur Rafnsson formaður KKÍ gera það.
Enn fremur hafa liðin ákveðið að eftir kynningu á liðunum verði einnar mínútu þögn til minningar um Berg Eðvarðsson sem lést nú í sumar. Bergur var frá Grindavík og lék með Grindvíkingum mest allan sinn körfuknattleiksferil. Hann lék einnig með Haukum og varð m.a. bikarmeistari með Haukum árið 1996.

Nánar er hægt að skoða dagskrá Íslandsmótsins næstu daga undir næstu leikir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A landslið karla sem tók þátt í C riðli Evrópukeppninnar í Hempstead árið  1977. Aftari röð frá vinstri: Birgir Örn Birgis þjálfari, Steinn Sveinsson sem var í landsliðsnefnd, Torfi Magnússon, Val, Bjarni Jóhannesson, KR, Pétur Guðmundsson, Val, Jón Jörundsson, ÍR, Bjarni Gunnar Sveinsson og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson, Njarðvík, Kári Marísson, Njarðvík, Kristin Jörundsson, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val og Jón Sigurðsson, Ármanni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið