© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.4.2009 | 7:30 | Kristinn
Kynningarfundur í Borgarholtsskóla á Íþróttaakademíunni
Körfuboltahópurinn á afreksbrautinni
Kynningarfundur verður haldin í Borgarholtsskóla mánudaginn 20. apríl kl. 19:30.

Íþróttir fyrir Afreksfólk í Borgarholtsskóla - Haustið 2009.
Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik, golfi og skíðum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræði-, mála-, náttúrufræði- og viðskipta og hagfræðibraut).

Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn.

Kröfur til nemenda:
• Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
• Að hafa staðist grunnskólapróf
• Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona.
• Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta.
• Standast eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15-19 einingum á önn.
• Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.

Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.

Frábær kennsluaðstaða:
• Egilshöll – íþróttahús Fjölnis
• Korpúlfsstaðir - Básar

Umsókn:
Nemendur sækja um bóknámsbraut rafrænt.
Umsóknareyðublað fyrir AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ er á www.bhs.is (undir “bóknám til stúdentsprófs”) eða á skrifstofu skólans.
Skil á umsóknum er 15. maí – 11. júní.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími 896-8566
bjarni@bhs.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8. flokkur karla sem var afar sigursæll veturinn 1992-93. Þjálfari þeirra var Hörður Gauti Gunnarsson sem var aðstoðarþjálfari mfl. kvenna hjá KR veturinn 2008-2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið