© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.3.2009 | 12:30 | FÍR og Stefán
Úrslit: Úrslitaleikir yngri flokkanna í beinni á netinu
Bikarúrslitaleikir yngri flokkanna fara fram um helgina og verður hægt að fylgjast tölfræði leikjanna beint á netinu.

Tveimur leikjum er lokið nú þegar. KR vann Þór Þorlákshöfn í 9. flokki karla 65:50.

Maður leiksins var Martin Hermannsson úr KR.

Leikur nr. 2 í dag var viðureign Keflavík-A og UMFG í 10. flokki kvenna. Þar hafði Keflavík sigur 61:37.

Maður leiksins var Árný Gestsdóttir úr Keflavík.

Þriðji bikarmeistari dagsins er lið Fjölnis í 11. flokki en þeir lögðu KR að velli 68-105.

Maður leiksins var Haukur Pálsson úr Fjölni.

KR-ingar urðu bikarmeistarar í unglingaflokki kvenna þegar þær lögðu Hauka 61-57.

Margrét Kara Sturludóttir úr KR var valinn maður leiksins.

Keflavík vann Val í úrslitum unglingaflokks karla 87-102.

Hörður Axel Vilhjálmsson úr Keflavík var valinn besti maður leiksins.

Fyrsti leikur sunnudagsins var viðureign Keflavíkur og UMFN í 9. flokki kvenna. Þar hafði Keflavík sigur 75-41.

Besti maður leiksins var Eva Rós Guðmundsdóttir í liði Keflavíkur.

UMFN og KR mættust í öðrum úrslitaleik sunnudagsins í 10. flokki karla. UMFN vann 77-53.

Valur Orri Valsson úr liði UMFN var valinn besti maður leiksins.

Keflavík-b varð bikarmeistari í Stúlknaflokki þegar þær lögðu granna sína í UMFN 51-71.

Eva Rós Guðmundsdóttir úr Keflavík var valin besti maður leiksins.

Fjölnir vann Skallagrím í drengjaflokki 55-99.

Ægir Þór Steinarsson var valinn besti maður leiksins.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Georgia Olga Kristiansen er ein fárra íslenskra kvenna sem hafa lagt fyrir sig dómgæslu að einhverju marki.  Hún var áður leikmaður með KR í mörg ár.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið