© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.1.2009 | 15:35 | Kristinn
Meistaradeild kvenna á Eurosport 2
Euroleage kvenna verður á Eurosport 2
Aðdáendur kvennakörfuboltans í Evrópu eiga nú möguleika á að sjá bestu liðin og leikmenn þeirra kljást á skjánum heima í stofu á Eurosport 2. Allir bestu leikmenn heims í kvennaboltanum spila í Meistaradeildinni og því er þetta frábært tækifæri til að sjá toppleiki í sjónvarpinu.

FIBA Europe hefur náð samkomulagi við stöðina um að sýna beint eða samdægurs frá leikjum í Meistaradeild kvenna. Samningurinn nær frá átta liða úrslitunum og allt fram í úrslitaleikinn. Undanúrslitin fara fram 3. til 5. mars næstkomandi.

Evrópumeistarar Spartak Moskvu taka á móti ZVVZ USK Prag á morgun 27. janúar fyrir þá sem hafa áhuga á og geta nálgast Eurosport 2.

Eurosport 2 nær til 34 milljón heimila á 11 tungumálum í 46 löndum Evrópu og lýstu bæði forsetar FIBA Europe sem og FIBA mikilli ánægju með að hafa náð samkomulagi við stöðina enda er það frábær lyftistöng fyrir kvennakörfuboltann.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins, gægist hér framhjá tveimur varnarmönum hollenska liðsins í leik liðanna í ágústmánuði 2009. Hollendingar reyndu að klófesta íslenska liðið en höfðu ekki erindi sem erfiði enda vann Ísland góðan sigur 87-75 eftir að hafa leitt með allt að 28 stigum. Jón Arnór var stigahæstur allra leikmanna á vellinum mdð 23 stig.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið