S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
23.12.2008 | 0:52 | FÍR
Dick Bavetta einn sá litríkasti í sögu dómara
Dick Bavetta í hópi með snillingum
Dick Bavetta er einn sá allra litríkasti sem hefur lagt flautuna sér til munns. Hann dæmdi í NBA deildinni í 32 ár, samtals 2.164 leikir, 228 leikir í úrslitakeppni og 24 lokaleiki úrslita svo eittvað sé tíundað. Hægt að lesa meira með því að smella á tengla sem eru í fréttinni. Á svona löngum ferli má gera ráð fyrir því að eitt og annað gerist sem gaman er að segja frá. Snemma á ferlinum var Bavetta að dæma leik í úrslitakeppninni á milli New Jersey Nets og Philadelphia 76ers og meðdómari hans í leiknum var Earl Strom annar snillingur sem einnig var tæplega " 100 " ár í deildinni. Í lok leiksins tók Bavetta dóm af Strom sem hafði áhrif á úrslit leiksins og er frægt hvað gerðist í klefa þeirra dómara eftir leik. Allt í einu kom Bavetta hlaupandi út úr klefanum í rifnum dómarabúningi með Strom á eftir sér öskrandi fúkyrði sem eiga ekki alveg við á aðventunni en er hægt að lesa um með því að smella á tengil hér að neðan Í tengslum við Stjörnuleikinn í Las Vegas ákváðu Dick Bavetta og Charles Barkley að safna fé fyrir gott málefni með því að fara í kapphlaup. Bavetta var 68 ára gamall og til í tuskið en þetta voru 3 og hálf ferð. Kapphlaupið má sjá hér Dick Bavetta var umdeildur og lenti í mörgu á ferlinum sem má m.a. lesa um hér og svo má einnig finna myndbrot af kappanum hér |