S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
14.7.1999 | 13:58 | -
Vassell og félagar töpuðu fyrir Bandaríkjamönnum
Keith Vassell, fyrrum þjálfari og leikmaður KR, er í kanadíska landsliðshópnum sem þessa dagana býr sig undir Ameríkukeppnina, sem jafnframt er forkeppni að Ólympíuleikunum í Sydney. Kanadíska liðið lék í gær æfingaleik gegn liði Bandaríkjanna og tapaði 69-97. Keith Vassell gerði 4 stig í leiknum, en stigahæstir í liði Bandaríkjanna voru Kevin Garnett 17, Allan Houston 14, Tom Gugliotta 12 og Tim Duncan með 9 stig. Bandaríkin og Kanada eru í sama riðla í keppninni auk Argentínu, Kúbu og Uruguay. Í hinum riðlinum eru Panama, Dómíkanska lýðveldið, Puerto Rico, Brasilía og Venezuela. Efsta lið hvors riðils vinnur sér sæti á ÓL í Sydney.
|