© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.10.2008 | 8:57 | Kristinn
Minnibolta mót Eymundsson og KR
KR heldur þriðja árið í röð Eymundsson-mótið
Þriðja árið í röð heldur unglingaráð körfuknattleiksdeildar KR mót fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára í samstarfi við Eymundsson.

Mótið verður haldið 11.-12. október í ár, en það hefur tekist einstaklega vel í síðustu tvö skipti. Skráning stendur yfir til mánudagsins 6. október á netfanginu benedikt@kr.is.eða í síma 510-5312. Mótsgjaldið er 2.000 kr. á hvern leikmann. Ekki þarf að skrá hvern og einn iðkanda heldur þarf að skrá lið og tiltaka fjölda í liðinu.

Það eru þeir Benedikt Guðmundsson og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfarar meistaraflokks KR sem fara með mótsstjórn.

Fyrirkomulagið er þannig að leikið er í 2x12 mínútur og er leiktíminn ekkert stöðvaður.
Leikið er í báðum sölum DHL-Hallarinnar og er dómari á hverjum velli. Hvert lið fær að lágmarki fjóra leiki í mótinu.

Eftir mótið verður síðan verðlaunaafhending og fá allir verðlaunapening og gjafabréf í Eymundsson. Að auki verður tekin mynd af hverju liði sem birtist á heimasíðu KR. Nánar um mótið er að finna á www.kr.is/karfa.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið