© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.9.2008 | 15:10 | OOJ
Heimavöllurinn hefur skipt Austurríkismenn miklu máli gegn Íslandi
Leikmenn landsliðsins eru komnir til Austurríkis
Íslenska karlalandsliðið er nú komið til Austurríki þar sem liðið spilar lokaleik sinn í Evrópukeppninni í haust. Spilað er í Güssing sem er fjögur þúsund manna bær í suð-austur Austurríki en hann er í um tveggja klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni Vín. Íslenska landsliðið hefur unnið 10 af 16 leikjum sínum á móti Austurríki en aðeins tvo af þeim sex leikjum sem hafa farið fram í Austurríki. Það er því ljóst að heimavöllurinn skiptir Austurríkismenn miklu máli í landsleikjunum á móti Íslandi.

Síðasti landsleikur Íslands gegn Austurríki á útivelli var spilaður undir sömu kringumstæðum fyrir tveimur árum. Austurríki tók þá á móti íslenska liðinu í lokaleik fyrri umferðar en þá var spilað í Klosterneuburg sem er 25 þúsund manna bær norður af Vín. Austurríki vann leikinn með 21 stigi, 85-64, eftir að hafa farið illa með íslenska liðið í lokaleikhlutanum en Austurríki vann fjórða leikhlutann 32-14. Logi Gunnarsson var stigahæstur hjá íslenska liðinu í þessum leik með 14 stig en Magnús Þór Gunnarsson skoraði 11 stig. Jón Arnór Stefánsson hafði meiðst í leiknum á undan á móti Lúxemborg og gat því ekki spilað leikinn.

Íslensku strákarnir eiga miklu betri minningar úr síðasta leik á móti Austurríki sem fram fór í Laugardalshöllinni fyrir ári síðan. Ísland vann þá sannfærandi 14 stiga sigur, 91-77, þar sem Jakob Örn Sigurðarson fór á kostum og var með 21 stig og 10 stoðsendingar, 58 prósent skotnýtingu og engan tapaðan bolta. Jakob var einn af fimm mönnum sem skoruðu yfir tíu stig í leiknum en Páll Axel Vilbergsson (13 stig), Fannar Ólafsson (12 stig, 8 fráköst), Helgi Már Magnússon (11) og Logi Gunnarsson (10 stig) náðu því allir. Íslenska liðið skoraði alls 17 þrista í leiknum en þar af var Jakob með fimm þriggja stiga körfur og þeir Páll Axel og Helgi Már skoruðu þrjár hvor.

Eitt besta dæmið um gott gengi Austurríkismanna á heimavelli á móti Íslandi eru tveir æfingaleikir sem voru spilaðir með þriggja daga millibili sumarið 2004. Sá fyrri var spilaður í St. Polten í Austurríki og hann unnu Austurríkismenn með 15 stigum, 96-81. Sá seinni var spilaður á æfingamóti í Ungverjalandi þremur dögum síðar og þann leik vann Ísland með þremur stigum. 74-71. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur í fyrri leiknum með 16 stig og Jakob Sigurðarson skoraði 13 stig en í þeim seinni skoraði Magnús Þór Gunnarsson mest eða 17 stig og Jakob kom síðan næstur með 13 stig.

Landsleikir við Austurríkismenn í Austurríki:

31.5.1985 í Linz, Austurríki-Ísland 63-72

27.3.1986 í Innsbruck, Austurríki-Ísland 75-69

31.3.1986 í Innsbruck, Austurríki-Ísland 78-65

23.6.1993 í Vín, Austurríki-Ísland 73-95

25.8.2004 í St. Pölten, Austurríki-Ísland 96-81

16.9.2006 í Klosterneuburg, Austurríki-Ísland 85-64

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þessir kappar ákváðu með 4 tíma fyrirvara að skella sér á stjörnuleikinn í NBA-deildinni árið 2001, en leikurinn fór þá fram í Washington. Frá vinstri Ólafur Þór Jóhannsson varaformaður KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ og Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari. Myndin tók fjórði ferðalangurinn, Björn Leósson mótastjóri KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið