S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
17.9.2008 | 9:30 | OOJ
Logi góður gegn þjóðum gömlu Júgóslavíu
Logi Gunnarsson Mynd: SÖA
Logi skoraði 29 stig á aðeins 23 mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum í leik á móti Slóveníu í milliriðli Evrópukeppninnar í Laugardalshöllinni 29. nóvember 2000. Logi nýtti 10 af 15 skotum sínum í leiknum þar af 2 af 4 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna. Logi nýtti síðan öll sjö vítin sín í leiknum. Þetta var aðeins sjöundi landsleikur Loga og hann hefur síðan aðeins einu sinni náð að skora fleiri stig í einum leik síðan þá. Logi stóð sig einnig vel á móti Makedóníu tveimur mánuðum síðar þegar Makedónarnir heimsóttu Laugardalshöllina 24. janúar 2001. Logi var þá kominn í byrjunarliðið og skoraði 13 stig á 22 mínútum í leiknum. Hann hitti úr 4 af 8 skotum sínum og öllum fjórum vítunum sínum. Logi hefur annars oftast fundið körfurnar í Laugardalshöllinni þar sem hann hefur skorað 13,9 stig að meðaltali í átta landsleikjum. Logi er með hæsta meðalskorið í Höllinni af núverandi leikmönnum landsliðsins en Jón Arnór Stefánsson kemur næstur með 12,2 stig að meðaltali í sex leikjum. |