S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
3.9.2008 | 22:16 | Stefán
Tap fyrir góðu slóvensku liði
Helena var allt í öllu hjá íslenska liðinu
Íslensku stelpurnar sýndu góða takta á köflum og var jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta. Í stöðunni 25-25 fóru þær slóvensku í gang og skoruðu næstu 21 stigin gegn aðeins þremur frá Íslandi og staðan 28-46. Hálfleikstölur voru 30-46. Í seinni hálfleik náði Ísland að minnka muninn og í fjórða leikhluta fengu þær tækifæri til að fara með muninn niður fyrir 10 stig. Sú tilraun tókst ekki og Slóvenía jók muninn á ný. Þrátt fyrir tap voru þær íslensku að spila ágætlega á köflum og var sigur Slóveníu helst til of stór og segja ekki alveg um gang leiksins. Stigahæst hjá Íslandi var Helena Sverrisdóttir með 18 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar. Næst henni kom Signý Hermannsdóttir með 11 stig og 9 fráköst. Önnur úrslit í riðlinum voru að Holland vann Svartfjallaland á útivelli 68-63 og Írland vann Sviss 79-65. Næsti leikur Íslands er gegn Írlandi á laugardag. |