© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.8.2008 | 16:50 | FÍR | Landslið
Góður sigur á Austurríki í dag
Góður sigur hjá Einari Árna og lærisveinum hans á Austurríki mynd: SÖA
Góður sigur vannst á Austurríki í dag og var allt annað að sjá liðið en í gær. Strákunum leið betur í dag og spiluðu af miklum krafti.

Liðin skiptust á körfum í upphafi leiks en góður 13:0 leikkafli íslenska liðsins skilaði 24:13 forystu eftir fyrsta leikhluta. Austurríki var ekki á því að gefast upp og með miklum spretti náðu þeir að komast 3 stigum yfir en strákarnir sýndu styrk og svöruðu hressilega og höfðu 10 stiga forystu í hálfleik 43:33.

Austurríki byrjaði seinni hálfleikinn betur og unnu 3. leikhlutann 14:12 og staðan þá 55:47. Lengra komst Austurríki ekki og náðist á tímabili 18 stiga forysta okkar drengja.

Lokatölur urðu 69:58

Einar Árni þjálfari ákvað að láta liðið spila 2-3 svæðisvörn frá byrjun og gafst það mjög vel, strákarnir voru duglegir að loka svæðum og var vinnslan í liðinu mjög góð.

Allir leikmenn lögðu mikið á sig og þeir leikmenn sem spiluðu minna eiga heiður skilinn fyrir hvatningu á liðsfélaga sína. Það er ekki sjálfgefið að leikmenn sem sitja utan vallar hvetji með þessum hætti. Svona liðsandi er gulls ígildi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Osló í Noregi í janúar 1986.  Ekki gott að tapa fyrir Jóni Kr. Gíslasyni í spilum…
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið