S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
7.8.2008 | 11:09 | OOJ
Höfum ekki náð nægilega góðum úrslitum á móti Noregi
Íslenska liðið spilar mikilvægan leik á móti Noregi í dag.
"Nú er framundan mjög stór leikur á móti Norðmönnum. Við höfum ekki náð nægilega góðum úrslitum á móti Noregi undanfarin ár en við teljum okkur ekki vera lakari en Noregur. Það hefur farið illa í síðustu tvö skipti sem við höfum spilað við Noreg en núna þurfa stelpurnar bara að mæta tilbúnar og leggja allt í sölurnar," segir Ágúst og hann hefur ekki áhyggjur af því að tapið gegn Svíum sitji í íslenska liðinu á morgun. "Ég held að þessar stelpur séu það miklir keppnismenn enda vita þær það að það þýðir ekkert í svona mótum og dvelja eitthvað lengi við einn leik. Nú er bara að einbeita sér að næsta leik á morgun," sagði Ágúst að lokum. Það verður hægt að horfa á leiki íslenska liðsins í gegnum netið. Netútsendingin er send í gegnum heimasíðu mótsins en hana má finna hér frá klukkan 16.45 í dag.. Tölfræði leiksins verður einnig lifandi á netinu og hún verður send út hér á meðan leiknum stendur í dag. Danirnir hafa útbúið flotta heimasíðu um mótið þar sem finna má allar helstu upplýsingar. Þar má finna fréttir og myndir af mótinu, leikjadagskrá og tölfræði. Heimasíða mótsins má finna hér. |