S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
3.8.2008 | 12:11 | OOJ
Signý verður áfram fyrirliði kvennalandsliðsins
Signý Hermannsdóttir er fyrirliði A-landsliðs kvenna.
Signý var fyrst fyrirliði íslenska landsliðsins í vináttulandsleik gegn Englandi í DHL-Höllinni 20. maí 2005. Íslenska liðið vann 71-63 sigur í leiknum og hefur unnið sex af tólf leikjum þar sem Signý hefur verið fyrirliði. Hún hefur alls spilað 44 landsleiki frá því að hún lék sinn fyrsta leik 7. maí 1999 og í þeim hefur Signý skorað 373 stig eða 8,5 að meðaltali. Signý er 29 ára gömul og spilar með Val í Iceland Express deildinni. Hún hefur alls leikið 152 leiki í efstu deild með Val og ÍS og í þeim leikjum hefur hún skorað 1750 stig (11,5 í leik), tekið 1486 fráköst (9,8), gefið 339 stoðsendingar (2,2) og varið 415 skot (2,73). Signý var valin í úrvalslið deildarinnar í fjórða sinn í vetur en hún hafði áður verið í liðinu 1998-99, 2004-05 og 2005-06. Signý setti nýtt met í vetur þegar hún varði 105 skot í 18 leikjum eða 5,83 að meðaltali í leik. Hún skoraði auk þess 14,3 stig að meðaltali í leik, tók 12,0 fráköst í leik og gaf 4,2 stoðsendingar í þeim 18 leikjum sem hún lék með Val í deildinni á síðasta tímabili. Leikmannahópur Íslands á Norðurlandamótinu 2008: 4 Signý Hermannsdóttir, fyrirliði 5 Petrúnella Skúladóttir 6 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 7 Jovana Lilja Stefánsdóttir 8 Ingibjörg Jakobsdóttir 9 Margrét Kara Sturludóttir 10 Hildur Sigurðardóttir 11 Pálína Gunnlaugsdóttir 12 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13 Kristrún Sigurjónsdóttir 14 Helena Sverrisdóttir, varafyrirliði 15 María Ben Erlingsdóttir Þjálfari: Ágúst Björgvinsson Aðstoðarþjálfari: Finnur Freyr Stefánsson Sjúkraþjálfari: Anna Pála Magnúsdóttir Fararstjóri: Halldór Bachman |