S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
5.6.2001 | 14:25 | bl
Allir heilir og klárir í slaginn gegn Sviss á morgun
![]() Dagurinn í gær var notaður til hvíldar, en um kvöldið var hörkuæfing í tvo tíma. Í dag var síðan aftur æfing, en leikurinn gegn heimamönnum er kl. 20 að staðartíma eða kl. 18 að íslenskum tíma. Allir strákarnir eru heilir og klárir í slaginn í leikinn á morgun. Svisslendingar mættu Írum á laugardaginn á heimavelli og unnu 67-58. Lágt stigaskor sem bendir til góðs varnarleiks. Hittni Svisslendinga var góð úr tveggja stiga skotum eða 51,3% sem þýðir að þeir skora mikið undir körfunni. Hittnin úr þrigga stiga skotum var ekki eins góð eða 38,5% og þeir gerðu aðeins 5 slíkar körfur úr 13 tilraunum. Vítahittni þeirra var slök eða aðeins 54,5%. Þá tapaði liðið 23 boltum, en stal aðeins 13. Með sigri í leiknum á morgun myndi íslenska liðið stíga mikilvægt skref í áttina að því tryggja sér sæti í undanúrslitakeppni fyrir EM í Svíþjóð 2003. mt: Herbert Arnarson fyrirliði íslenska liðsins átti góða leiki með liðinu í San Marínó. |