S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31.3.2008 | 10:30 | oddur
Borgarskotið - Góð hittni
Valur Valsson
Leikurinn er með sama sniði í ár. Fjórir áhorfendur fá að reyna skot á milli leikhluta á öllum leikjum í úrslitakeppnunum. Takist þeim að hitta vinna þeir sér inn ferð fyrir tvo til einhvers af áfangastöðum Iceland Express. Á leik Skallagríms og Grindavíkur vann Valur Valsson sér inn ferð fyrir tvo til Basel. Valur æfir körfubolta með yngri flokkum Skallagríms. Hann á ekki langt að sækja körfuboltahæfileikana en hann er sonur Vals Ingimundarsonar. Vordís Heimisdóttir Á fyrsta leik Keflavíkur og Þórs var skotið upp á ferð til Stokkhólms. Vordís Heimisdóttir og Lovísa Falsdóttir gerðu sér lítið fyrir og hittu báðar úr þriggja stiga skoti og unnu sér inn ferð fyrir tvo. Lovísa Falsdóttir Lovísa æfir körfubolta með yngri flokkum Keflavíkur og er dóttir Fals Harðarsonar og Margrétar Sturlaugsdóttur. Lovísa á því ekki langt að sækja körfuboltahæfileikana frekar en Valur Valsson. Nánar á heimasíðu Keflavíkur. |