S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
19.3.2008 | 23:10 | oddur | Mótahald
Keflavík í úrslit
Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur (mynd: Snorri Örn)
Lokatölur leiksins urðu82-67 og var Pálína Gunnlaugsdóttir með 22 stig í leiknum fyrir Keflavík. TaKesha Watson lék einnig vel en hún skorai 18 stig, sendi 13 stoðsendingar og tók 7 fráköst í leiknum. Hjá Haukum var Victoria Crawford stigahæst með 25 stig. Keflavík vann því einvígið 3-0 og eru komnar í úrslit þar sem þær mæta annað hvort liði Grindavíkur eða KR. Grindavík sigraði KR í kvöld 66-78. Staðan í einvigi liðanna er því 2-1 fyrir KR en næsti leikur verður á heimavelli Grindavíkur á laugardag. Úrslitakeppni 1. deildar karla hófst í kvöld og það voru heimaliðin sem náðu að sigra fyrstu leikina. FSu sigraði Hauka 113-90 á Selfossi og Valur sigraði Ármann 79-77 í æsispennandi leik í Vodafonehöllinni. Liðin munu mætast aftur á laugardag. |