S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
14.3.2008 | 12:16 | oddur
Úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hefst í kvöld
Fyrirliðar liðanna í úrslitakeppninni. (mynd: Emil Örn Sigurðarson)
KR tekur á móti Grindavík klukkan 19:15 í DHL-Höllinni í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Það er ljóst að þetta verður hörkuleikur en þessi lið enduðu í 2. og 3. sæti deildarinnar. Liðin mættust 4 sinnum í deildinni í vetur og unnu 2 leiki hvort. Það má því búast við jöfnum og spennandi leik í kvöld. Lokaumferð 1. deildar karla verður í kvöld. Enn er ekki ljóst hvernig lokastaðan í deildinni verður en Ármann og Haukar gætu skipt um stað í töflunni. Í Iceland Express deild karla verða 2 leikir. Hamar og Stjarnan mætast í Hveragerði í leik sem er Iceland Express leikur umferðarinnar. Í Borgarnesi mætast Keflavík og Skallagrímur. Keflavík getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með því að sigra í kvöld. |