© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.3.2008 | 11:00 | oddur
Aganefnd dæmir 3 í leikbann
Aganefnd KKÍ hefur tekið fyrir þrjú mál sem bárust henni. 2 leikmenn og einn þjálfari voru dæmdir í eins leiks bann.

Bojan Popovic, leikmaður KFÍ, fékk eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í leik gegn Haukum í 1. deild karla í síðustu viku. Hann mun því ekki vera með í leik KFÍ gegn Þór frá Þorlákshöfn á föstudaginn.

Ari Gunnarsson, þjálfari Hamars í Iceland Express deild kvenna, fékk eins leiks bann eftir leik Keflavíkur og Hamars í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna. Hann mun því missa af fyrsta leik næsta tímabils.

Florian Miftari, leikmaður Skallagríms, var dæmdur í eins leiks bann vegna brottvísunar sem hann hlaut í leik gegn Njarðvík. Hann verður því í leikbanni á móti Keflavík á föstudaginn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson kastar boltanum til að hefja leik Hauka og Njarðvíkinga þann 26. janúar 2006.  Það eru Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, sem bítast um boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið