© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.3.2008 | 13:03 | oddur
Blaðamannafundur vegna úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna
Í dag klukkan 14:00 verður á Grand Hótel blaðamannafundur vegna úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna.

Á fundinn munu mæta fulltrúar frá Keflavík, KR, Grindavík og Haukum en þessi liði munu leika í úrslitakeppninni sem hefst á föstudaginn.

Keflavík varð deildarmeistari og mun því mæta Haukum, sem enduðu í fjórða sæti, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þessi lið mættust í úrslitunum í fyrra en þá sigruðu Haukar. Fyrsti leikurinn á milli liðanna verður klukkan 17:00 á laugardaginn í Keflavík.

Hin viðureignin mun verða á milli KR og Grindavíkur. KR kom upp úr annarri deildinni í fyrra og hefur náð frábærum árangri í vetur. Liðið endaði í öðru sæti og hefur því heimaleikjarétt í fyrstu umferðinni gegn Grindavík. Grindavík hefur verið með sterkustu liðunum í deildinni síðustu ár og eru núverandi bikarmeistarar. Það er ljóst að mikil spenna verður í kringum þessa viðureign. Fyrsti leikur KR og Grindavíkur verður á föstudag, klukkan 19:15 í DHL-Höllinni.

Leikjaplan fyrstu umferðar úrslitakeppninnar:

14.03.2008 KR – Grindavík leikur 1 kl. 19:15
15.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 1 kl. 17:00
16.03.2008 UMFG - KR leikur 2 kl. 19:15
17.03.2008 Haukar - Keflavík leikur 2 kl. 19:15
19.03.2008 KR - Grindavík leikur 3 kl. 19:15
19.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 3 kl. 19:15
22.03.2008 Grindavík - KR leikur 4 kl. 16:00 (ef að með þarf)
22.03.2008 Haukar - Keflavík leikur 4 kl. 16:00 (ef að með þarf)
25.03.2008 KR - Grindavík leikur 5 kl. 19:15 (ef að með þarf)
25.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 5 kl. 19:15 (ef að með þarf)


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson kastar boltanum til að hefja leik Hauka og Njarðvíkinga þann 26. janúar 2006.  Það eru Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, sem bítast um boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið