© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2008 | 14:42 | oddur
Aganefnd úrskurðar í tveimur málum
Aganefnd hefur tekið fyrir tvö mál sem bárust henni í síðustu viku.

Ingvi Steinn Jóhannsson, þjálfari Þróttar Vogum í 1. deild karla, hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í leik Þróttar Vogum gegn Þór frá Þorlákshöfn.

Aganefndin hefur einnig tekið fyrir kæru sem barst á Yngva Gunnlaugsson, þjálfara Hauka í Iceland Express deild kvenna.
Úrskurður Aganefndar er svohljóðandi:

Aganefnd lítur svo á að þrátt fyrir að ummæli kærða verði að teljast óheppileg og geti sem slík verið túlkuð á þann hátt að rýrð sé varpað á starfsheiður dómara í umræædum leik, sé ekki rétt að beita refsiviðurlögum að svo stöddu. Hins vegar vill nefndin árétta að hún telur mikilvægt að forsvarsmenn félaga sýni gott fordæmi með framkomu sinni á leikjum, gagnvart öllum þeim sem þar koma að málum.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið