© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.2.2008 | 12:35 | oddur
Stórleikir í Iceland Express deild karla í kvöld
Í kvöld lýkur 17. umferð Iceland Express deildar karla með tveimur leikjum.

KR tekur á mót toppliði Keflavíkur í DHL-Höllinni. Takist KR að sigra komast þeir upp að hlið Keflavíkur í 1. sæti deildarinnar. Keflavík vann fyrri leik liðanna í vetur auðveldlega 107-85 svo að það má búast við að KR-ingar mæti ákveðnir til leiks í kvöld.

Í Dalhúsum mætast Fjölnir og ÍR. Fjölnir er með 8 stig í 11. sæti deildarinnar en ÍR-ingar eru með 12 stig í 8. sætinu. Þetta er gífurlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið til í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Fyrri leikur liðanna endaði með sigri Fjölnis 83-85.

Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Staðan í Iceland Express deild karla.

Í 1. deild karla mætast Breiðablik og Þór Þorlákshöfn klukkan 19:15 í Smáranum í Kópavogi. Breiðablik eru efstir í deildinni en Þór er í 4 sæti. Fyrri leikur liðanna fór 70-80 fyrir Breiðablik.

Einn leikur verður í 1. deild kvenna í kvöld þegar topplið Snæfells tekur á móti botnliði Breiðabliks. Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Stykkishólmi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
KR liðið sem varð Reykjavíkurmeistarar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið