© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.1.2008 | 20:25 | SÖA
Góðum Stjörnudegi lokið
Ólafur treður knettinum í körfuna (mynd: Snorri Örn)
Stjörnuleikir KKÍ fóru fram í dag í Keflavík. Dagurinn tókst vel en báðir leikirnir voru fullir af tilþrifum frá bestu leikmönnum landsins.

Fyrri leikurinn var á milli kvennalandsliðsins og úrvalsliðs Iceland Express. Iceland Express liðið hafði frumkvæðið í leiknum og landaði sigri með 100 stigum gegn 78. Monique Martin var stigahæst hjá Iceland Express liðinu en Signý Hermannsdóttir skoraði mest fyrir landsliðið.

Karlaleikurinn á milli landsliðsins og Iceland Express liðsins fór fjörlega af stað með glæsilegum troðslum og þriggja stiga skotum. Landsliðið leiddi mestan hluta leiksins en úrvalsliðið náði að komast yfir á lokamínútunum sem voru æsispennandi. Iceland Express liðið komst yfir 135-136 þegar lítið var eftir af leiknum. Landsliðið náði þó boltanum þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og rauk fram í hraðaupphlaup þar sem brotið var á Hlyn Bæringssyni þegar lokaflautan gjall.

Hlynur fékk því tvö vítaskot og setti þau bæði örugglega ofan í. Íslenska landsliðið sigraði því 136-137.

Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, gerði sér lítið fyrir og sigraði í troðslukeppninni.

Ólafur fékk harða samkeppni frá mótherjum sínum og fengu áhorfendur í Keflavík að sjá mörg glæsileg tilþrif. Tilþrif Ólafs þóttu þó best og að launum hlaut hann sigurverðlaunin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sextán ára lið Íslands sem varð Norðurlandameistari árið 2004.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið