S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
9.1.2008 | 9:20 | oddur
Valur og FSu sigruðu
Signý Hermannsdóttir lék vel fyrir Val í gærkvöldi. (SÖA)
Leikur Vals og Keflavíkur var Iceland Express leikur Vals. Leikurinn var æsispennandi en leikurinn varð tvíframlengdur. Valsstúlkur virðast hafa náð að undirbúa sig vel fyrir leikinn því þær náðu að sigra topplið Keflavíkur 97-94. Molly Peterman skoraði 38 stig fyrir Val og stal 10 boltum í leiknum. Signý Hermannsdóttir átti einnig góðan leik en hún skoraði 16 stig, tók 15 fráköst og sendi 8 stoðsendingar. Hjá Keflavík var TaKesha Watson með 25 stig og 9 stoðsendingar. FSu tók á móti Haukum á Selfossi í 1. deild karla. Heimamenn unnu nokkuð öruggan sigur 92-67. Þar sem Matthew Hammer skoraði 19 stig og Árni Ragnarsson skoraði 16 stig, tók 10 fráköst og sendi 7 stoðsendingar. Staðan í 1. deild karla. Í kvöld verða 2 leikir í Iceland Express deild kvenna. Fjölnir tekur á móti Grindavík og Hamar fær Hauka í heimsókn. Staðan í Iceland Express deild kvenna. |