© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.11.2007 | 11:27 | oddur
Lýsingarbikarinn - Úrslit og leikir dagsins
Í dag verða leiknir 3 leikir í Lýsingarbikar karla. 5 leikir fóru fram í gærkvöldi.

Það var ekki mikið um óvænt úrslit í Lýsingarbikarnum í gær en Hamar, Tindastóll, Grindavík, Stjarnan og KR komust öll áfram í 16-liða úrslit með því að sigra leiki sína í gærkvöldi. Snæfell og Skallagrímur voru þegar búin að tryggja sér sæti þar.

Allir leikirnir unnust nokkuð örugglega í gærkvöldi fyrir utan leik Breiðabliks og Tindastóls. Blikar voru með forystu lengst af en Tindastóll náði að komast yfir í lokin og tryggja sér sigur 80-84.

Á karfan.is má finna umfjallanir og myndir úr leikjunum.

Í dag verða þrír leikir í Lýsingarbikarnum. Í Sandgerði mætast tvö lið úr 1. deild karla þegar Reynir tekur á móti FSu. Leikurinn hefst klukkan 16:00.

Tveir leikir verða í Seljaskóla í dag. Klukkan 14:30 mætast Glói og Þróttur Vogum og klukkan 16:30 verður svo leikur Leiknis og Þór úr Þorlákshöfn.

Því miður er ekki hægt að sjá tölfræði úr leikjum gærdagsins ennþá vegna bilunar í tölvukerfi. Þetta mun vonandi komast lag í dag en beðist er velvirðingar á þessu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þátttakendur í kynningarleik á hjólastólakörfubolta. Sitjandi frá vinstri: Reynir Kristófersson, Viðar Árnason, Svanur Ingvarsson, Jóhann Kristjánsson, Sigurður Sigurðsson, Þorkell Sigurlaugsson og Geir Magnússon frá Stöð 2. Standandi frá vinstri: Skapti Hallgrímsson Morgunblaðinu, Adolf Ingi Erlingsson RÚV, Valur Jónatansson Morgunblaðinu, John Rhodes, Ólafur Rafnsson formaður KKÍ, Samúel Örn Erlingsson RÚV, Valtýr Björn Valtýsson Stöð 2, Ólafur Eiríksson og Valur Hlíðberg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið