© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.11.2007 | 21:54 | oddur
Metáhorf í NBA
Yao Ming að verja skot frá Yi Jianlian (mynd: nba.com)
Í gærkvöldi áttust við Houston Rockets og Milwaukee Bucks í deildarkeppni NBA. Gífurlegur áhugi var fyrir leiknum í Kína enda voru þarna að mætast Yao Ming og Yi Jianlian.

Houston Rockets unnu leikinn og áttu Yao og Yi báðir góðan leik.

Yao Ming er fyrir löngu búinn að skapa sér nafn í körfuboltaheiminum og er af mörgum talinn besti miðherji heims í dag.

Yi Jianlian var valinn númer 6 af Milwaukee í nýliðavali NBA deildarinnar síðastliðið vor. Hann er talinn gífurlega efnilegur og Yao Ming sagði eftir leikinn að hann teldi að Yi yrði betri leikmaður en hann sjálfur.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessir leikmenn mætast í NBA deildinni og því var gífurlegur áhugi fyrir þessum leik, sérstaklega í Kína. Leikurinn var sýndur á 19 sjónvarpstöðvum í Kína og það er talið að rúmlega 200 milljónir manna hafi horft á leikinn. Þetta er líklega mesta áhorf á leik í deildarkeppni NBA frá upphafi.

Körfubolti er gífurlega vinsæll í Kína og það er líklegt að fleiri góðir leikmenn muni koma þaðan á næstu árum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1995.  Aftari röð frá vinstri: Sigurður Hjörleifsson þjálfari, Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Hrefna Hugósdóttir, Elísa Vilbergsdóttir, Unnur Henrysdóttir, Svana Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Hannes S. Jónsson varaformaður, Sævar Guðbergsson stjórnarmaður og Jóhann Árnason formaður.  Fremri röð frá vinstri: Hildur Ólafsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Penny Peppas, Olga Færseth og Sólveig Kjartansdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið