Í Iceland Express deild karla verður annars vegar toppslagur, þegar Keflavík og KR mætast og hins vegar botnslagur á milli Þórs Akureyri og Hamars.
Keflavík hefur enn ekki tapað leik í deildinni og KR hefur aðeins tapað einum leik til þessa svo það er á hreinu að þarna er um toppleik að ræða. Það má búast við miklum fjölda á leiknum í kvöld enda eiga bæði þessi lið þekkta stuðningshópa sem mæta á völlinn. Umfjöllun um leikinn má finna á heimasíðu Keflavíkur.
Þór Akureyri og Hamar hafa ekki byrjað tímabilið vel og bæði lið ætla sér meira í vetur heldur en þau hafa sýnt í leikjum sínum til þessa. Leikurinn í kvöld verður frumraun Ágúst Björgvinssonar sem þjálfari Hamars. er að finna á heimasíðu Þórs.